Suð-austan átt
Hljóðinnsetning á samsýningunni ,,Concrete Layers", 2021 í Verksmiðjunni á Hjalteyri
Í innsetningunni Suð-austan átt, 2021, vann ég með hugmyndina um að færa ytra umhverfi inn í í innra umhverfi - byggingu. Hljóð úr hafinu hljóðaði í tveimur hátölurum inni í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Hljóðin voru tekin upp á horn kanti við fjöruna þar fyrir utan. Ólík sjávar hljóð úr sitt hvorri áttinni, suður-og austur átt, sem áttu það sameiginlegt að skella á steinanna með nokkra sekúndna millibili sem skapaði samtal á milli aldanna.

Þegar öldurnar komu nær öðrum megin við hornið, heyrði ég samtímis hvernig þær fjöruðu út hinum megin við hornið. Öldurnar hreyfðu við steinunum í fjörunni á sama tíma sem skilaði sér í upptökurnar.
Hátalararnir voru stilltir upp við það horn inni í Verksmiðjunni, sem stóð við hornið þar sem ég hafði tekið upp hafhljóðin.

