top of page
Screen Shot 2020-09-23 at 08.55.01.png

Ungur nemur
gamall temur, 2019

15 mín vídeóverk á lúppu.

​

​Sýnt á skjá, á samsýningu í Listaháskóla Íslands.

Ungur nemur gamall temur fjallar um tvö kynslóðabil og núvitundina sem fylgir mismunandi augnablikum í lífi einstaklings. Í vídeóinu heyrist í ungum nema, hann telur upp hluti í sjónum og lærir ný orð um sjóinn, það er augljóst að mælandinn er barn. Hann horfir á öldurnar í fjarlægð með ferskum augum og kannar þessa nýju veröld sem hann er kominn í. Á meðan temur gamall, eldri rödd, þar sem hann horfir til baka og rifjar upp liðna tíð, segir sögur úr fortíð sinni af litríku lífi á sjó sem hefur mótað hann. Hann horfir á yfirgnæfandi öldurnar í sjónum við svartar Íslandsstrendur og talar um stormviðri og erfiðið sem fylgdi sjómannalífinu, og kennir barninu á lífið. Óreyndur og forvitinn hlustar barnið á afa sinn, horfir á öldurnar úr fjarlægð með þá vitneskju að allt lífið er framundan.

Screen Shot 2020-09-23 at 08.54.55.png
IMG_6398.PNG

Mynd á sýningu.

bottom of page