top of page

Suð-austan átt

Hljóðinnsetning á samsýningunni ,,Concrete Layers", 2021 í Verksmiðjunni á Hjalteyri

Í innsetningunni Suð-austan átt, 2021, vann ég með hugmyndina um að færa ytra umhverfi inn í í innra umhverfi - byggingu. Hljóð úr hafinu hljóðaði í tveimur hátölurum inni í Verksmiðjunni á Hjalteyri.

 

Hljóðin voru tekin upp á horn kanti við fjöruna þar fyrir utan.  Ólík sjávar hljóð úr sitt hvorri áttinni, suður-og austur átt,  sem áttu það sameiginlegt að skella á steinanna með nokkra sekúndna millibili sem skapaði samtal á milli aldanna.

​

​

Þegar öldurnar komu nær öðrum megin við hornið, heyrði ég samtímis hvernig þær fjöruðu út hinum megin við hornið. Öldurnar hreyfðu við steinunum í fjörunni á sama tíma sem skilaði sér í upptökurnar.

 

Hátalararnir voru stilltir upp við það horn inni í Verksmiðjunni, sem stóð við hornið þar sem ég hafði tekið upp hafhljóðin. 

​

IMG_0029.jpg
211002_Hjalteyri_0003_31.jpg
bottom of page