Tímabrot / Fragments of time

Tímabrot er málverkasýning sem samanstendur af málverkum á striga og endurunnu plasti, útskornum strigum og einu vídeóverki stillt upp á skjá.
Tímabrot opnaði 4. júní, 2022, í SÍM Gallerý, Hafnarstræti 16. Uppsetning og skipulag sýningarinnar var unnin í samstarfi við sýningarstjóra, hana Sunnu Dagsdóttur.

Malakít, 2020
60x80 cm
Akríl, sprey og litarpigment á striga
Án titils, 2020
100x100 cm
Akríl, sprey, olía, litarpigment á striga

Um Sýninguna
Málverkin á sýningunni sýna tímalínu af verkum mínum frá árunum 2020-2022, sem ég vann að samhliða öðrum innsetningum, sem ég setti fram á þessu tímabili.
Hvert og eitt þessara málverka hefur fangað ákveðið augnablik í sköpunarferli mínu og bera þau öll einkenni forvitni, leiks og tilrauna.
Málverk sýningarinnar eru sem kaflar í bók, og hefur hvert og eitt þeirra sögu að segja.


Plakat fyrir sýninguna.


Stilla úr vídeóverkinu ,,Málverk verður til", 2021.
Vídeóverkið er nokkurs konar málverk á hreyfingu. Það birtist áhorfandanum og hverfur svo hægt og bítandi. Með þessum hætti reyndi ég að fanga það augnablik þegar listamaður málar verk, og þannig ná fram þeirri sköpunarorku sem verður til þá stundina.

Pastel blús, 2019
45x60 cm
Akríl og önnur efni á á striga
Ametíst, 2020
50x60 cm
Akríl og önnur efni á striga
