
Leg Lög
2020
Installation: sculptures, video, soundwork.
Einkasýning í Naflanum, Listaháskóli Íslands.
Hugmyndir um tímalínu náins sambands á milli tveggja einstaklinga, í tvennu lagi. Samböndin umbreytast frá hverri lögun til þeirrar næstu með erfðum og samfélagslegum áhrifum sem er sýnt fram með mörgum lögum og myndum af málverki.
Móðir mín talar um móður sína, hún segir mér sögur af henni, sögur sem ég segi barninu mínu. Ferlið hefur í för með sér vængjahaf frásagna á milli kynslóða. Þarna eru tveir einstaklingar sem mótast saman en jafnframt í sitt hvoru lagi, mismunandi og með einstökum hætti.
Þannig tengjast kynslóðirnar fram og til baka í tímann, frá fortíð inn í framtíð þar sem menningararfur og uppruni erfast í gegnum kynslóðirnar, með vitneskjunni sem flyst þar á milli.
